Heildverslun með umbúðir fyrir matvæli
RMK var stofnað árið 2004 og hefur starfað í núverandi mynd frá 2006. Við erum fjölskyldufyrirtæki og heildverslun sem sérhæfir sig í umbúðum fyrir matvæli, en bjóðum líka rekstrarvörur og annað sem þarf í daglegum rekstri.
Hjá okkur er viðskiptavinurinn númer eitt. Við leggjum áherslu á fagleg svör, hagstætt verð og að hlutirnir gangi hratt. Þú talar við fólk sem þekkir vörurnar og veit hvað er til á lager.
Við erum í góðu sambandi við framleiðendur víða um heim sem geta sérframleitt og merkt umbúðir eftir þínum óskum. Okkur er annt um umhverfið og leggjum upp úr því að bjóða endurvinnanlegar umbúðir, FSC- og EN 13432-vottaðar þar sem það á við.
Hvað við gerum
Innflutningur og lager
Við flytjum umbúðir inn í magni og höldum þeim á lager í Tónahvarfi 7. Það sem er á lager fer samdægurs í sendingu í Reykjavík.
Sérprentun með þínu merki
Þitt merki á bakkann, pokann eða málið. Sérprentun tekur um 14 daga.
Umhverfisvænni umbúðir
Pappi, bagasse og önnur endurvinnanleg efni, með FSC- og EN 13432-vottun þar sem hún á við.
Reikningsviðskipti
Samþykkt fyrirtæki fá heildsöluverð, 30 daga greiðslufrest og alla pöntunarsöguna á Mínum síðum.
Starfsfólk
Sölu-, lager- og bókhaldsteymið er allt á sama stað í Tónahvarfi 7. Hringdu í 554 2888 og þú færð samband við einhvern sem þekkir vörurnar.
2004
árið sem RMK var stofnað
200+
vörunúmer
14
dagar í sérprentun með þínu merki
Samdægurs
sending í Reykjavík af lagervöru