Um vefverslunina
Vefverslunin er í eigu og umsjón RMK ehf., kt. 5103042170, Tónahvarf 7, 203 Kópavogur. Vöruúrvalið er opið öllum, en verð birtast, og pantanir eru mögulegar, þegar þú hefur skráð þig inn með aðgangi hjá okkur.
Verð og greiðsluskilmálar
Öll verð eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Verð geta breyst án fyrirvara; verð sem staðfest er í pöntun gildir fyrir þá pöntun.
Heildsöluverð eru bundin innskráningu. Samþykkt fyrirtæki fá heildsöluverð og 30 daga greiðslufrest.
Pantanir
Þú fær staðfestingu í tölvupósti þegar pöntun er komin til okkar. Við höfum samband ef vara er ekki til á lager eða ef eitthvað þarf að skýra betur áður en pöntunin er afgreidd.
Afhending
Þú getur sótt pöntunina í Tónahvarf 7 á opnunartíma eða fengið hana senda. Pantanir á lagervöru fara samdægurs í sendingu í Reykjavík; um allt land sendum við með Dropp.
Sendingarleiðir og sendingarkostnaður birtast þegar þú gengur frá pöntun.
Vöruskil og athugasemdir
Skoðaðu sendinguna við afhendingu. Ef vara er skemmd, vantar eða er ekki í samræmi við pöntun, hafðu samband við söludeild án ástæðulauss dráttar á order@rmk.is eða í 554 2888 og við leysum úr því.
Vöruskil á ógallaðri vöru eru í samráði við söludeild. Sérprentaðar og sérframleiddar vörur eru ekki teknar til baka.
Persónuvernd og vafrakökur
Við notum upplýsingarnar sem þú gefur okkur til að afgreiða pantanir, halda viðskiptasögu og eiga samskipti um reksturinn. Við afhendum þær ekki þriðja aðila nema til að koma sendingunni til þín eða þar sem lög krefjast þess.
Vefurinn notar vafrakökur til að halda innskráningu og körfu virkri og til að mæla notkun. Hafðu samband á order@rmk.is ef þú vilt afrit af þínum upplýsingum eða láta eyða þeim.