Nýr vefur og ný vefverslun RMK

Vefverslun með öllu vöruúrvalinu, leit sem finnur vöruna eftir heiti eða vörunúmeri, Mínar síður með pöntunarsögu, reikningum og notendum fyrirtækisins.

Pappaumbúðir RMK með mat á tréborði

Nýr vefur RMK er kominn í loftið: vefverslun, leit sem finnur vöruna og innskráning þar sem verð, pantanir og reikningar eru á einum stað.

Við byggðum vefinn upp frá grunni með eitt markmið: að þú finnir réttu umbúðirnar á fáum sekúndum og getir pantað þegar þér passar, hvort sem það er í hádegishléinu, eftir lokun eða úr símanum inni í eldhúsinu.

Allt vöruúrvalið á einum stað

Vöruúrvalið er komið í vefverslunina og flokkað eftir notkun: bakkar, pokar, drykkjarumbúðir, sushi-bakkar, salatskálar, sósubox, hitabakkar, álbakkar og rekstrarvörur.

Hver vara er með mynd, vörunúmeri og upplýsingum um mál og pakkningu, svo þú getir staðfest að þetta sé rétta stærðin áður en þú pantar.

Skoða vöruflokka · Skoða allar vörur

Leit sem finnur vöruna

Leitarreiturinn er efst á hverri síðu og niðurstöður birtast jafnóðum og þú slærð inn, hvort sem þú skrifar heiti vörunnar eða vörunúmerið. Þú getur líka ýtt á skástrikið (/) hvar sem er á vefnum til að fara beint í leitina, án þess að nota músina.

Verð og pantanir eftir innskráningu

Heildsöluverðin okkar eru fyrir viðskiptavini. Þess vegna eru vöruúrvalið, myndirnar og allar upplýsingar opnar öllum, en verðin og pöntunarhnappurinn birtast þegar þú skráir þig inn. Samþykkt fyrirtæki fá heildsöluverð, 30 daga greiðslufrest og endurpöntun í tveimur klikkum.

Ef fyrirtækið þitt er í viðskiptum við RMK en þú hefur ekki skráð þig inn á nýja vefnum, notaðu „Týnt lykilorð?“ á Mínum síðum eða hringdu í 554 2888 og við hjálpum þér inn. Nýir viðskiptavinir stofna reikning á sama stað.

Mínar síður

Þegar þú ert skráður inn er reksturinn þinn hjá okkur á einum stað:

  • Pantanir: öll pöntunarsagan, með yfirliti yfir það sem er í vinnslu. Þú endurpantar fyrri pöntun í staðinn fyrir að slá hana inn upp á nýtt.
  • Reikningar: yfirlit yfir reikninga og stöðuna hjá okkur.
  • Notendur: fleiri starfsmenn geta fengið sína eigin innskráningu, og þú stýrir hvað hver má gera: leggja inn pöntun, sjá pantanir fyrirtækisins eða skoða reikninga.
  • Heimilisföng: vistaðu fleiri afhendingarstaði ef reksturinn er á fleiri en einum stað.

Sending og afhending

  • Samdægurs sending í Reykjavík.
  • Frí sending yfir 9.900 kr.
  • Eða þú sækir pöntunina hjá okkur í Tónahvarfi 7 í Kópavogi.

Sérprentun á umbúðum er áfram á 14 dögum, og umbúðirnar okkar eru FSC- og EN 13432-vottaðar.

Í símanum eins og í tölvunni

Vefurinn er byggður fyrir símann til jafns við tölvuna: leitin, vöruflokkarnir, karfan og Mínar síður virka eins hvort sem þú ert við skrifborðið eða standandi á lagernum. Vefurinn er líka til á ensku: EN í valmyndinni efst.

Hönnun og þróun

Nýi vefurinn og vefverslunin eru hönnuð og byggð af Avista.

Segðu okkur hvað vantar

Vefurinn heldur áfram að þróast og við viljum heyra hvað vantar. Ef vara, verð eða upplýsingar eru ekki réttar, eða þú kemst ekki inn, hringdu í 554 2888 eða sendu okkur línu á order@rmk.is.

Deila:
Fréttir & tilkynningar

Önnur tíðindi

Fréttabréf RMK

Fáðu næstu grein í pósthólfið.

Nýjar vörur, tilboð og tíðindi úr rekstrinum — eitt bréf á mánuði, beint í pósthólfið þitt.
FYRIR FYRIRTÆKI · REIKNINGSVIÐSKIPTI

Stofnaðu heildsölureikning

Samþykkt fyrirtæki fá heildsöluverð, sjá pöntundarsögu og sína lista, allt á einum stað.
✓ SAMDÆGURS SENDING Í REYKJAVÍK
✓ FRÍ SENDING YFIR 20.000 KR.
✓ SÉRPRENTUN Á 14 DÖGUM
✓ FSC OG EN 13432 VOTTAÐ